Færsluflokkur: Íþróttir
26.5.2009 | 12:47
60.000 boltar
Opna franska tennismótið hófst á Roland-Garros tennissvæðinu í París um helgina. Ekki gerði ég mér grein fyrir því hvað marga tennisbolta þarf í móti sem þessu. Sá það í blaðinu mínu, að keppendur nota hvorki fleiri né 60.000 bolta meðan á mótinu stendur.
Ætli þeir teljist svo ekki annað hvort ónýtir eða í besta falli nýtilegir til æfinga þegar mótið er afstaðið?
Roland-Garros mótið stendur yfir í tvær vikur og er meðal þeirra stærstu í heiminum. Íþróttin er gríðarlega vinsæl hér í Frakklandi sem keppnisgrein og frístundaiðkun.
Í ár beinist athyglin fyrst og fremst að Spánverjanum Rafael Nadal. Spurningin sem allir spyrja er hvort hann vinni mótið fimmta árið í röð. Slíkt hefur engin afrekað. Nadal hóf leik í gær og þurfti lítið fyrir brasilískum keppanda að hafa, lagði hann í þremur settum.
Nadal vann sinn 29. leik á Roland-Garros í gær sem er met. Og athyglisvert er að í þeim öllum hefur hann einungis tapað 7 settum. Og enginn leikurinn hefur teygst fram í fimmta sett, þeim hefur í mesta lagi lokið í fjórða setti, oftast í því þriðja!
Önnur megin spurning í tengslum við mótið er hvort svissneski tenniskappinn Roger Federer takist að bæta sigri í Roland-Garros í safnið. Hann hefur unnið öll stórmótin í tennis á ferlinum, sum hver mörgum sinnum, nema í Roland-Garros.
Keppnin hefur ekki farið alltof vel af stað fyrir Frakka. Ein helsta stjarna þeirra, Amelie Mauresmo, féll úr leik í fyrstu umferð gegn þýskri stúlku.
Króatinn Ivo Karlovic féll úr leik með því að tapa fyrir Bandaríkjamanninum Lleyton Hewitt í fimm setta leik. Karlovic setti þó met í sögu stórslemmumóta, hlaut samtals 55 ása í leiknum. Gamla metið var frá 2005 og hljóðaði upp á 51 ás. Það átti hann sjálfur ásamt Svíanum Joachim Johansson. Karlovic setti það í opna ástralska mótinu en Johansson í Wimbledon.
Það vekur athygli, að rússneska tennisdrottningin fyrrverandi, Maria Sharapova, er mætt aftur til leiks, eftir tæplega árs fjarveru vegna meiðsla.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2009 | 15:37
Fíkniefni fellir frægan hjólreiðagarp
Ekkert skil ég í hinum ágæta belgíska hjólreiðamanni Tom Boonen, sem verið hefur einn sá fremsti í heiminum undanfarin ár. Annað árið í röð hefur hann verið útskúfaður frá keppni í Tour de France, og af sömu ástæðu.
Boonen á erfitt með að umgangast áfengi og kókaín. Í fyrra var hann stöðvaður við akstur í heimalandi sínu og sendur í blóðpróf þar sem ljóst þótti að hann væri í einhvers konar vímu. Þar reyndist um kókaín að ræða.
Hjólreiðamenn eru undir strangara eftirliti en nokkrir aðrir íþróttamenn og því er undarlegt að Boonen skyldi ekki halda sig á mottunni eftir það sem á undan var gengið. Í fyrra slepptu belgísk dómsyfirvöld honum en búist er við að hann njóti ekki lengur velvilja vegna brotsins nú.
Kókaín er ekki á bannlista hjá íþróttahreyfingunni en neysla þess varðar við hegningarlög í Belgíu. Eins og í fyrra hefur liðið hans þegar sett hann í ótímabundið keppnisbann, rætt er um að það verði allt að hálft ár. Framkvæmdastjóri Tour de France segir augljóst, að útilokað sé að kappinn mikli verði með í Frakklandsreiðinni vegna þessara mála.
Boonen er frægur fyrir styrk sinn á endaspretti og hefur unnið margar dagleiðir í Tour de France á undanförnum árum. Þá komst hann í byrjun apríl í hóp örfárra hjólreiðagarpa sem sigrað hafa þrisvar sinnum í hinni frægu þolreið frá París til Roubaix.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2009 | 15:19
Horfinn skíðakappi fannst fyrir tilstilli Facebook
Rayamajhi er aðeins 17 ára og mun hafa fyllst vonleysi eftir að liðið hafði orðið að sjá á eftir styrktaraðila. Hermt er að hann hafi reikað burt frá Ölpunum og komist til Parísar á puttanum. Hann fór peningalaus og símalaus og talaði hvorki ensku né frönsku. En með hjálp vinsamlegra íbúa hér og þar á leiðinni hafi hann komist af. Lögregla stöðvaði hann margsinnis en frekari afskipti voru ekki höfð af honum þar sem hann var með pappíra og vegabréfsáritun í góðu lagi.
Þar sem hann hvarf svo sporlaust var jafnvel talið að hann hafi farist í fjöllunum, t.d. orðið undir snjóflóði. Til vonar og vara var hafin leit að honum á Facebook. Eftir henni tók maður nokkur sem rekist hafði á Rayamajhi. Tók hann sig til, leitaði hann uppi, fann hann við Bastillutorgið og sýndi honum síðuna sem honum var helguð. Á endanum féllst hann á að snúa aftur til félaga sinna í Les Arcs.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.5.2009 | 08:25
Davíð lagði Golíat að velli
Það sannaðist eina ferðina enn, að það er enginn sigurstranglegri en annar þegar um bikarleiki í fótbolta er að ræða. Í úrslitaleik franska bikarsins á Stade de France í gærkvöldi fóru leikar svo, að Davíð lagði Golíat að velli, eins og ég hafði spáð. Smáliðið Guingamp hafði betur gegn Rennes, 2:1, í skemmtilegum leik. Og það sem enn undarlegra er; áhorfendur á þjóðarleikvanginum í París voru fleiri en þegar Frakkar léku þar til úrslita í HM árið 1998 og höfðu eftirminnilegan sigur eða 80.056.
Já, það var sett áhorfendamet á vellinum, enda nokkurs konar þjóðhátíð okkar Bretóna þar sem bæði liðin voru héðan af Bretaníuskaganum; Rennes úr héraðinu mínu, Ille-et-Vilaine og Guingamp frá Cotes-d'Armor. Eins og ég lýsti í gær hefur líf og starf og öll umræða síðasta hálfan mánuðinn snúist um leikinn. Og hann var býsna góður, skemmtilegur á að horfa, hraður og þungar sóknir á báða bóga, og drengilega leikinn.
Boltinn rataði ekki í netið fyrr en um miðjan seinni hálfleik, á 69. mínútu. Rennes tók þá frumkvæði og maður hélt um stund að nú félli annarrar deildarliðinu Ketill í eld. En svo var ekki og Guingampar létu ekki bugast. Héldu þeir í sókn og eftir tvær mínútur höfðu þeir jafnað. Sumpart verður að skrifa það mark á undarleg varnarmist Rennverja, ekki síst sænska landsliðsmannsins Hansson. Og 12 mínútum seinna, á 83. mínútu, tókst þeim enn að leika á vörn Rennes og taka forystu, 2:1, en það urðu svo úrslit leiksins.
Frábærlega var að öllum mörkum staðið, mark Rennes kom þó upp úr aukaspyrnu lengst utan af velli. Bæði lið hefðu verið vel að sigri kominn. Leikurinn mikill sigur fyrir bretónskan fótbolta og vildu margir vera í sporum 5.000 manna bæjarins Guingamp sem státar nú af frönskum bikarmeisturum.
Burtséð frá úrslitunum var leikurinn sjálfur, allur aðdragandi hans og framkoma áhorfenda Bretaníu til mikils sóma - um það eru allir sammála. Gleði mikil í stúkunni allan leikinn og friðsemd þegar fagnaðarlátum linnti í leikslok.
Til gamans má geta þess, að tveir af helstu leikmönnum Chelsea í ensku úrvalsdeildinni hófu feril sinn með Guingamp, þeir Drogba og Malouda. Voru þeir um tíma liðsfélagar hjá bretónska liðinu, litla risanum, rétt eins og hjá Chelsea nú.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2009 | 18:30
Bretónar í hátíðarskapi dögum saman
Bretónar hafa verið í hátíðarskapi dögum saman og ekki af ástæðulausu. Á morgun verður háður úrslitaleikur frönsku bikarkeppninnar í fótbolta á sjálfum þjóðarleikvanginum í París, Stade de France. Til úrslita leika tvö bretónsk lið; Rennes og Guingamp.
Fyrirfram virðast flestir ganga út frá því að Rennes sé sigurstranglegra, enda meðal betri liða í efstu deildinni frönsku. En bikarleikir hafa einhverra hluta hér í landi sem annars staðar reynst með öllu útreiknanlegir. Því vilja fæstir afskrifa Guingamp, sem er fyrir miðjum hóp í annarri deild.
Þótt Rennes standi mér nær þá hef ég löngum haft tilhneigingu til að halda með þeim sem lakari þykja og því ætla ég að veðja á Guingamp á morgun.
Hver sem niðurstaðan verður sigrar Bretaníuskaginn og það er fyrir mestu. Gríðarleg stemmning hefur verið hér um slóðir undanfarnar vikur, eða frá því liðin unnu sig í úrslitaleikinn. Staðarblöðin hafa verið undirlög dag hverng og stærsta blaði landsins, Ouest-France sem gefið er út í Rennes, fylgdi margra síðna sérstakur blaðauki helgaður leiknum.
Fyrir leik mun þjóðsöngur Bretóna óma um Stade de France.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.4.2009 | 14:32
Söguleg sundmet á franska meistaramótinu
Tímamót urðu í sögu 100 metra skriðsunds á franska sundmeistaramótinu um nýliðna helgi í Montpellier. Hákarlinn og ólympíumeistarinn Alain Bernard gerði sér lítið fyrir og synti vegalengdina undir 47 sekúndum, fyrstur manna í heiminum.
Bernard synti vegalengdina á 46,94 sekúndum. Áður en hægt verður að staðfesta árangurinn sögulega sem heimsmet þarf sundsamfestingur hans að öðlast samþykki. Mun hann hafa verið úr nýju gerviefni sem eftir á að hljóta náð fyrir augum Alþjóða sundsambandsins.
En svo jafnir og góðir eru franskir sundmenn, að metið dugði Bernard lítt þegar í úrslitasundið kom. Þar hafði betur og varð franskur meistari annar af tveimur helstu keppinautum hans, Frederick Bosquet.
Bosquet hafði þar með ekki sagt sitt síðasta því á lokadegi mótsins sigraði hann í 50 metra skriðsundi og það á nýju heimsmeti. Var það einnig sögulegt því hann synti á 20,94 sekúndum og sá fyrsti í sögunni sem syndir vegalengdina á innan við 21 sekúndu.
Bosquet var í sveit Frakka sem vann silfurverðlaun í 4x100 metra skriðsundi á ólympíuleikunum í Peking. Bernard var í þeirri sveit einnig en auk silfurs þar varð hann ólympíumeistari í Peking í 100 metra skriðsundi og vann brons í 50 metra skriðsundi.
Í báðum tilvikum varð ástralski sundgarpurinn Eamon Sullivan af metum sínum. Í mars í fyrra í Sydney synti hann 50 m skriðsund á 21,28 sek. Og metið hans í 100 metra skriðsundi, 47,05 sek., setti hann í Peking.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2009 | 07:53
Frakkar segir í tennis
Þrír Frakkar eru meðal 10 fremstu tennisleikara heimsins samkvæmt nýjum styrkleikalista atvinnumannasambandsins í tennis (ATP). Gilles Simon er í sjöunda sæti, Gaël Monfils í níunda, og Jo-Wilfried Tsonga í því tíunda. Að sögn blaðsins Ouest-France í dag, er þetta í fyrsta sinn frá stofnun ATP árið 1973 að þrír Frakkar skipi sér meðal 10 bestu tennisleikara heimsins.
Aukinheldur eiga Frakkar fleiri spilara en nokkur önnur þjóð meðal 50 efstu manna á styrkleikalista ATP eða níu talsins. Endurspeglar þetta að einhverju miklar vinsældir tennisíþróttarinnar hér í landi.
Í efsta sæti á styrkleikalista ATP er Spánverjinn Nadal, annar er Svisslendingurinn Federe og þriðji Serbinn Djokovic.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2009 | 19:47
Loeb ósigrandi
Franski ökumaðurinn Sebastien Loeb, sem ekur Citroen C4, er í algjörum sérflokki í HM í ralli. Í dag fór hann með sigur af hólmi í argentínska rallinu fimmta árið í röð. Þá vann hann fimmta mótssigur sinn í ár en hann hefur verið ósigrandi frá í fyrra.
Liðsfélagi Loeb, Spánverjinn Dani Sordo, varð í öðru sæti í Argentínu, 1,13 mínútum á eftir. Þriðji varð Norðmaðurinn Henning Solberg, rúmum fjórum mínútum á eftir Frakkanum.
Loeb er kominn með 20 stiga forystu í keppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra, en vertíðin er að verða hálfnuð. Hefur hann 50 stig, Sordo 31 og Finninn Mikko Hirvonen hjá Ford 30 stig.
Ég held að ekkert geti komið í veg fyrir að Loeb vinni titil ökuþóra í ár, sjötta árið í röð. Enginn annar ökumaður í sögu HM í ralli kemst með tærnar þar sem hann hefur hælana hvað árangur og afrek varðar.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)